Margt smart á ebay
Það er greinilegt að það er hægt að selja allt á ebay. Spurning hvort maður ætti að kaupa sér eitthvað af þessu fyrir veturinn. Hann gæti orðið kaldur og þá myndu nú þessar hrikalegu smart buxur aldeilis koma sér vel.
Að ég tali nú ekki um þetta – spurning um að henda kraft-gallanum og cintamani gallanum og fara bara að vera í svona í vetur og slá í gegn.
TV Diva – Magni Rules!
Kristin the TV Diva á Eonline er með vikulegt “chatt” þar sem sjónvarpssjúklingar geta spurt spurninga um uppáhalds þáttinn sinn og hún gefur upp alls konar spoilera og annars konar gotterí.
Í chattinu sem hún var með í gær kemur eftirfarandi fram:
From lukesdiner: Any scoop on Rock Star? Do you think Dilana is going home this week after the personality reveal last week? (Magni rocks!)
Magni rules…but no idea. I mean, Dilana has too much talent. Plus, remember the sorts of shady things J.D. said last year?! Didn’t seem to hurt him at all.
60 mins í gærkvöldi á NFS
Fyrir þá sem horfðu á 60 min. í gærkvöldi á NFS
Annað frekar fyndið úr the Colbert Report: Snakes on the Colbert Report – mæli með þessu.
The Daily Show with Jon Stewart í íslenskt sjónvarp…
Ég sendi póst í dag á RÚV og lagði það til að þeir myndu taka The Daily Show with Jon Stewart til sýningar og einnig The Colbert Report sem er alveg jafn frábær og fyndinn og TDS. Ég veit ekki hvort þeir taki mark á svona póstum sem eru sendir til þeirra – en það skaðar ekki að reyna. Ef ég fæ ekkert svar innan einhverra dag þá ætla ég að byrja að senda á hinar stöðvarnar.
Ef Skjár 1 getur verið með 2.-3. daga gamla Jay Leno þætti á hverju kvöldi þá hlýtur að vera hægt að gera það sama með þessa þætti. Þetta eru BARA bestu gamanþættir sem ég hef séð í langan tíma og það er hægt að skoða klippur úr þeim bæði á heimasíðum þáttanna og á youtube.com (sjá einnig hlekki í bloggfærslunni hér fyrir neðan)
Ef það eru einhverjir aðrir sem eru sammála mér í þessari skoðun minni þá mæli ég eindregið með að þeir sendi þeim vinum á dagskrárdeildinni á RÚV línu líka. Ég vil nú ekki setja netföngin þeirra hérna beint inn en ef farið er á síðuna Hafið samband á RÚV vefnum þá eru netföngin þar. Ég valdi að senda til bæði “Dagskrárritstjóra sjónvarpsins” og “Erlend dagskrá – Sjónvarpið” var ekki alveg viss hvor það ætti að vera en annar hvort hlýtur það að vera.
The internet is not a truck… gæti það verið
Hér eru nokkrar klippur úr The Daily Show. Þetta er algjört must að horfa á – hrikalega fyndið.
1) The internet is not a truck but a bunch of tubes
2) Fréttaskýring sem útskýrir aðeins “betur” hvað var sagt í síðasta segmenti þ.e. Hvað er net neutrality? (til að fatta “I’m a PC” brandarann þá er hægt að horfa á þetta – er bara 30 sek. Gæinn sem er með “fréttaskýringuna” leikur í auglýsingum þar sem hann er PC tölva)
3) Ég held að íslenskir alþingismenn ættu að taka þennan bandaríska þingmann sér til fyrirmyndar og byrja að vera með svona gamaldags “power point” sýningar þegar þeir standa í pontu. Bara svona til að allir fatti um hvað er verið að ræða.







