að skipta um gír
Fór með bílinn minn í viðgerð í morgun vegna mánudags-bíla-einkenna sem er ekki mjög aðlaðandi í 1. árs gömlum bíl. Á meðan heklugæjarnir voru að laga bílinn þá létu þeir mig fá bíl til að nota á meðan og ég náttúrulega fattaði ekkert að biðja um sjálfskiptan bíl og var auðvitað látin fá beinskiptan bíl. Guð minn góður – ég hef ekki keyrt beinskiptan bíl í örruglega 6-7 ár og þá var það í ca. 10 mínútur. En þetta reyndar gekk vonum framar og það er ótrúlegt hvað maður kemst strax upp á lagið með þetta nema hvað ég var í amk 5 mín. að fatta hvernig ég ætti að setja í bakkgír. Þar sem ég er mikil RFM manneskja þá tók ég út bókina um bílinn og fór að leita að því hvernig ætti að setja í bakkgír og eftir nokkra leit þá komst ég að því að ég þurfti að ýta gírstönginni niður og svo til vinstri. Kannski eru allir beinskiptir bílar svona í dag en þetta var pottþétt ekki svona á appelsínugula skódanum mínum – sem er eini bíllinn sem ég hef “átt” og keyrt sem er beinskiptur en það var fyrir alltof mörgum árum síðan. En þessi gírareynsla mín varð bara til þess að ég elska sjálfskipta bílinn minn ennþá meira og ég man mjög vel af hverju ég ÞOLI ekki að keyra beinskipta bíla.







