Hrossaflugur
Ég veit ekki hvort það voru fleiri en ég og Anna L. sem pirruðust á hrossaflugufaraldrinum sem virtist ganga yfir landið í byrjun september. En hér er frétt á BBC sem talar einmitt um að það sama sé að gerast í Bretlandi og einhverjar útskýringar á því.
Mér var svo sem alltaf alveg sama um hrossaflugur – þær eru frekar ljótar, leiðinlegar og óþarfar en annars voru þær ekkert að trufla mig… þangað til ég flutti til Bretlands. Á ensku eru þær kallaðar “Daddy Longlegs”, ég get ekki útskýrt af hverju, en mér finnst þetta alveg hrikalega krípí nafn og núna þegar ég sé hrossaflugur þá get ég ekki annað en hugsað um þetta nafn og ég fæ hroll alveg niður í tær. Núna get ég ekki haft þær neins staðar nálægt mér – ég náði meira segja að rota eina með sjónvarpsfjarstýringunni í byrjun september þegar hún dirfðist til að koma of nálægt mér. Druslan hrundi rotuð/dauð í gólfið og ég gat þá hent henni út.







