.. strikes again..
Ég vil bara benda á það að hún Brynka virðist vera byrjuð að blogga aftur og skrifar um sitt helsta áhugamál sem eru sæ-fæ þættir ;o)
Friends mistök … framhald.
Meiri Friends mistök. Hrikalega fyndið.
Talandi um hleranir…
Hér er nýr texti og myndband við lagið “I just called to say I love you”…. passar ekki alveg við íslenska hleranamálið en … ekki ósvipað ;o)
Næstum því..
Missti símann minn í gólfið í morgun og hann datt allur í sundur við þetta fall og skopp. Nema hvað að hann skekktist aðeins og ég ætlaði aldrei að koma batteríinu aftur í símann. Ég var byrjuð að brosa breitt yfir því að nú YRÐI ég að kaupa mér nýjan síma (sem mig langar svooo að gera) en svo small batteríið allt í einu í símann og hann virkar fínt aftur
( ohhhhhhhhhh
Michael J Fox
Ég fékk bara tár í augun að horfa á þetta – hrikalegt hvað hann er orðinn illa farinn af Parkinson.
Írak og Lord of the rings
Einn af þeim “eðal” mönnum sem tekur þátt í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum þessa dagana ákvað um daginn að vera svolítið hip og kúl og líkti Írak stríðinu við Hringadrottinssögu. Die hard LOTR aðdáendur voru nú ekki ánægðir með þetta og bentu á að þessi samlíking hans virkaði ekki neitt rosalega vel (ég vil benda á að greinin heitir “Hobbit fans unleash geek fury on Rick Santorum” –
) þ.m.t. vinur vors og blóma, Stephen Colbert, sem er LOTR aðdáandi númer 1 (Viggo Mortensen gaf honum víst LOTR kalla úr súkkulaði þegar hann kom í viðtal í Daily Show) og hér er hægt að sjá þegar hann tekur þetta fyrir í þættinum sínum (MJÖG fyndið).
Nýjustu Rockstar Supernova fréttir…
Nýjustu fréttir herma að hvorki Magni, Storm né Húsbandið muni fara á tónleikaferðalagið með Rockstar Supernova heldur verður það víst bandið hans Toby sem mun hljóta heiðurinn.
Magni-ficent staðfestir þetta sjálfur á nýju heimasíðunni sinni. Þannig fór um sjóferð þá..
Man of the year
Ný Robin Williams mynd, Man of the year, er að fara koma út. Trailerinn lítur amk vel út.
já, og BTW.. Það er komið jóladót í Rúmfatalagerinn!!!!!!! Ekki seinna að vænna því það er svo “stutt” í jólin.
Colbert: Hvernig á að koma í veg fyrir skotárásir í skólum?
Stephen Colbert gefur sitt álit á því hvernig eigi að koma í veg fyrir skotárásir í skólum í Bandaríkjunum. Hrikalega fyndið.







