Die Hard vélritun
Fór að sjá Die Hard í gærkvöldi með Beggu. Skemmtilegt að segja frá því að nýjasti “kærastinn” hennar Beggu leikur í þessari mynd ;o) Þetta er hin fínasta poppkorn mynd – Brúsarinn tekur þetta allt í nefið eins og honum er einum lagið ásamt því að vera með one-linerana tilbúna á færibandi þegar honum vantar.
Það vita það sumir að það fer svolítið mikið í taugarnar á mér þegar ég sé fólk í bíó eða sjónvarpinu vera að vinna við tölvur. Það er alveg sama hvað það er að gera það er alltaf þvílíkt að hamra á lyklaborðið. Takið t.d. eftir því í næsta CSI þætti þegar þeir fara að zúma inn á einhvern hluta í myndbandinu (sem er með nákvæmlega þau sönnunargögn sem þeim vantaði til að negla “the perp”.. of course) að þegar ferhyrningurinn er búinn til utan um þann hluta af skjánum sem þarf að skoða betur þá byrjar tölvunördinn að vélrita heila ritgerð alveg þangað til að myndin er búin að uppfærast svo hrikalega mikið að það sést augnliturinn á aðilanum. Það virðist vera að hvorki Ctrl + F5 (eða einhver álíka lyklasamsetning) né músin séu til í Hollywood.
Þannig að þegar tölvudótið byrjaði í Die Hard (og það er frekar mikið af því) þá ákvað ég bara að slökkva á vélritunarpirringsvélinni – því annars hefði ég ekki náð að njóta myndarinnar. Því Die Hard er ekkert öðruvísi en aðrar Hollywood myndir – það er alveg sama hvað er verið að gera á tölvuna það byrja allir að vélrita alveg eins og brjálæðingar.
Does… Not… Compute…
Súrsætt er eitthvað sem ég hef aldrei skilið. Maður er að borða eitthvað sem er súrt á sama tíma og það er sætt – þetta er rökvilla sem ég er bara ekki að meika. Ég get alveg borðað súrsætt ef mér er boðið í mat og það er á boðstólum en allan tímann sem ég er að borða súrsætan mat þá kemst bara ein hugsun að í heilanum á mér; “Does… Not… Compute..!”
Í gærkvöldi eldaði ég svo voða fínan karrýgrænmetisrétt til að hafa með blábersmarineraða silungnum mínum sem er svo sem ekki frásögufærandi nema það að út í þennan karrýrétt átti nefnilega að setja 4 tsk af mango-chutney – þó svo að chutney-ið mitt sé sykurlaust þá er það nú gert sætt á einhvern hátt. Karrý-ið var nú ekki súrsætt en það var sterkt-sætt (Does.. Not.. Compute!!) – ég skil ekki hvað ég var að hugsa. Ég gat nú svælt þessu í mig og blábersmarineraður silungurinn var algjört lostæti og reddaði kvöldmatnum. Ég hefði átt að vita þetta því mér finnst t.d. karrý með banönum alveg hrikalegt – var bara búin að steingleyma því.
Kvöldinu var reddað með perumjólkinni: 3 dl fjörmjólk, 1 pera, 1/2 tsk vanillukorn, 2 ísmolar – allt sett í blandara. Ég hef oft búið til súkkulaði-bananamjólk á sama hátt en hef aldrei prófað peru. Þrátt fyrir hrakfarir kvöldmatsins þá ákvað ég að gera smá tilraunastarfsemi á þessu líka og sem betur fer þá heppnaðist það betur. Hrikalega gott!
Betri en þeir verstu..
- Er það einhver rosalegur áfangi að standa sig betur en Skotland í einhverju??
- Ef Skotland er í neðsta sæti þá hljóta öll hin löndin á listanum (sem eru bara að hluta til nefnd) að standa sig líka betur heldur en þeir.
- Það kemur ekki neins staðar fram í hvaða sæti Ísland er á þessum voða fína lista (við gætum þess vegna verið í næst neðsta sæti).
- Það kemur ekki fram í hvaða sæti Skotland var á síðasta ári – duttu þeir niður um eitt sæti eða 16?? Það hlýtur að skipta máli??
Hvers konar blaðamennska er þetta eiginlega??
Ísland stendur sig betur en Skotland
Skotland stendur sig verst í hópi smáríkja í Vestur-Evrópu samkvæmt nýrri skýrslu um efnahagsmál. Smáríki í þessu tilviki teljast vera ríki með færri en níu milljónir íbúa og á listanum eru lönd eins og Ísland, Noregur, Írland og Norður-Írland sem öll stóðu sig betur en Skotland.
The Federation of Small Businesses (FSB), sem er hagsmunasamtök sjálfstæðra atvinnurekenda í Bretlandi, hefur borið saman tíu lönd hvað varðar efnahagsmál, atvinnumál, heilsu og menntunarstig og lentu Skotar nú í neðsta sæti. Það voru slakar lífslíkur þeirra sem drógu þá mest niður en lífslíkur Skota eru þær minnstu á Bretlandseyjum. Skotland hrapaði líka niður um eitt sæti á lista OECD yfir 24 vestræn ríki og vermir nú 17. sætið þar á bæ og vega slakar lífslíkur Skota þungt.
FSB segir þetta vera skýr skilaboð til nýrrar heimastjórnar í Skotlandi sem verði að grípa til strangra efnahagsaðgerða og hafa skoskir ráðherrar lýst því yfir að Skotland geti og eigi að gera betur.
Austurríki vermdi neðsta sætið í fyrra, en atvinnuleysi hefur nú minnkað þar í landi sem togar landið upp í níunda sætið.
Þar sem fréttin er um Skotland gerði ég ráð fyrir því að hún væri af BBC og fór því þangað til að finna upprunalegu fréttina sem er hægt að sjá hér. Þar kemur orðið “Iceland” fyrir einu sinni, einnig kemur fram að þetta sé samanburður á milli 10 landa og Skotland sé í 10. sæti og svo er farið út í það af hverju þeir eru í þessu sæti. Þar sem þetta er “Skotlands fréttasíðan” á BBC þá er það alveg skiljanlegt. Þess vegna skil ég ekki af hverju fréttin á mbl.is er ekki um hvar Ísland sé á þessum lista og af hverju?? Jú reyndar veit ég það – það er út af því að það var tekinn úrdráttur úr fréttin af BBC sem var svo þýddur og at-bú.
Ef einhver nennir að lesa þessa fínu skýrslu sem var verið að gefa út þá er hún hér.
Ég opnaði skjalið og leitaði að orðinu “Iceland” og komst að því að Ísland er í 1. sæti í þessari könnun/rannsókn. Hefði það ekki verið betri frétt?? Amk hefði verið hægt að bæta því þarna inn – en það kom reyndar ekki fram í BBC fréttinni þannig að það er kannski ekki hægt að ætlast til þess að fólk fari að bæta því inn, noti “the google” eða t.d tengda linka sem eru við hliðina á fréttinni á BBC vefnum sjálfum til að finna meiri upplýsingar (þannig t.d fann ég skjalið með niðurstöðunum).
Ef einhver er ekki búinn að fatta það nú þegar þá fara svona illa-þýddar-með-ekkert-samhengi-fréttir á mbl.is hrikalega í taugarnar á mér.
Hundur og Kris í óskilum
Hundur í óskilum tekur Kris Kristofferson í Kastljósinu. Hrikalega flott hjá þeim.







