Síðasti dagur fyrir frí…
.. og ég nenni ekki að vera í vinnunni né að gera neitt.
Ég vil því benda á trailer fyrir mynd sem er gerð eftir bók sem ég er búin að vera að ætla að lesa lengi, lengi. En þegar ég les bækur að þá er ég alltaf að reyna að vera eitthvað svo menningarleg að léttmetis-bækur lenda alltaf neðst á listanum. Ég held að það sé komin tími til að hætta þessu snobbi og lesa skræðuna amk áður en myndin kemur í bíó. Þessi bók fær reyndar algjöra hörmungar dóma á amazon en fá svona “trashy novels” einhvern tíman góða dóma??







