5 klst. grilluppsetning
Grillið var sett saman í gær og tók samtals 5 klst þ.e. pabbi var í 3 klst að setja það saman og þar af var mágurinn að hjálpa í 2 klst. Ég horfði á grillið samsett í búðinni og hugsaði með mér að þetta gæti ekki verið mikið mál .. úps. En eftir alla samsetninguna fengu þeir grillað hrefnukjöt og með því og svo heimalagaðan ís í eftirrétt. Mágurinn heldur því reyndar fram að ég skuldi honum fullt, fullt af grilli fyrir alla þessa vinnu og vesenið í kringum þetta… og ætli það sé ekki rétt hjá honum.







