Af því ég drekk svo mikið kaffi…
Samkvæmt kaffiprófinu er ég
Bankakaffi!
..sívinsælt og bráðnauðsynlegt.
Hvernig kaffi ert þú eiginlega?
Ekki vissi ég að bankakaffi væri svona gott???
Bankakaffi!
Þú ert harðduglegur og vinnusamur einstaklingur sem mætir fyrstur allra á kontórinn og ferð síðastur heim. Vinnufélagar þínir líta upp til þín og hugsa með sér í hljóði hvaðan þú fáir alla þessa orku.
Þeir vita ekki sem er. Þú færð nefnilega allan dugnaðinn úr bankakaffinu góða.
Bankakaffi er samheiti fyrir gamla góða uppáhellinginn en dregur nafn sitt af ókeypis kaffi í bönkum. VARÚÐ: Ef bankakaffi fær að standa á brúsanum of lengi verður það súrt.
NY og Miami
Ég hélt að það væri ekki hægt en ég held að bjánahrolls-stuðullinn hjá CSI:NY sé að slaga hátt upp í CSI:Miami bjánahrollinn. Ég er frekar svekkt yfir þessu – mér fannst NY þættirnir vera svo fínir í byrjun og var svo ánægð með að þeir væru meira Las Vegas en Miami. Svo hafa þeir bara farið downhill from there…
Nælon þráður finnst undir kló á ketti og hrokkinhærða CSI stelpan man eftir því að hafa séð rifinn “window screen” á glugga í íbúð (sem hafði ekkert með málið að gera) þegar hún var að tala við vitni fyrr um daginn. Út frá þessu ákveðið að nælon þráðurinn sé úr þessu “window screen” (as you do!!). Það þarf greinilega ekki alltaf vísinda-nörda atriði til að “sanna” hlutina.
Hleðslutækið…
… er komið í hús. Fékk það loksins áðan. Ég reyndar gleymdi spilaranum mínum heima þannig að ég er ekki búin að prófa það ennþá…. fingers crossed!
Ég er samt ekki að meika þessa stráka sem eru að vinna “frammi í búð” í Hátækni. Ég bið um að fá að tala við “Gunnu í þjónustudeild” og þá er bara sagt: “Hún er í þjónustudeildinni” (í alvöru!! ég var að segja það) og svo er bara bent. Ekkert að fara bakvið til að ná í hana eða eitthvað svoleiðis. Nei, nei – bara bent. Svo fór ég í þjónustudeildina – ákvað að vera leiðinleg og fór bara fram fyrir fullt af fólki og bað konuna í afgreiðslunni um að fá að tala við “Gunnu”. “Ekkert mál!” – hún skreppur bak við í 5 sek og kallaði á hana og sagði svo að hún kæmi eftir 1 mín.
Ég verð nú að segja, eftir allt þetta Hátækni kvart í mér, að ég hef ekkert út á þessa blessuðu þjónustudeild að setja. Það hafa allir þar verið voða hjálplegir (þegar ég kemst að þ.e.a.s.
) – heldur eru það “strákarnir frammi” sem ég er hrikalega hneyksluð á.
American Style + 7%
Jæja, American Style er búið að hækka verðin sín aftur upp í það sem þau voru fyrir 7% vsk breytinguna.
Hátækni, schmátækni
Hrikalega er Hátækni EKKI uppáhaldsfyrirtækið mitt núna.
Eftir þrjár ferðir í Hátækni til að fá að skipta tæki, sem ég keypti þar og virkar ekki, þá veit ég það að það tekur óendanlegan tíma að bíða eftir að fá afgreiðslu í þjónustudeildinni og strákarnir frammi hafa ekkert að gera út af því að þeir senda alla í þjónustudeildina. Svo er það fyrsta sem starfsfólk þjónustudeildarinn spyr þegar ég er búin að útskýra: “Ertu búin að tala við strákana frammi?” þegar ég segi að þeir sendu mig þangað þá er andvarpað og farið fram að tala við strákana þar (amk í mínu tilfelli), ljósrita svo nótuna mína og segja mér að koma aftur á morgun. AAARG!! Reyndar í 3 skiptið neitaði ég að fara í þjónustudeildina og ætla mér ekki að bíða þar aftur í klst. til að fá spurninguna “Ertu búin að tala við strákana frammi?”. Þegar ég sagði við strákinn, sem ég var að tala við, hvort hann gæti ekki reddað þessu þar sem ég vissi það að tækið sem mig vantar að skipta út væri tilbúið og biði bara eftir mér?? En nei, nei – “þjónustudeildin sér um þetta” og málið var dautt. Þar sem það voru uþb 10 manns að bíða og ég beið í fyrsta skiptið í amk hálfíma og þá voru bara tveir á undan mér – þá labbaði ég bara út. Ég var ekki að nenna þessu.
Sektir fyrir “Wanker numberplates”
Á mbl.is í dag er smá frétt um að eftirherma Bin Ladens hafi komist nálægt Bush en þessi frétt segir náttúrulega ekki alla söguna – skoðið þetta. Þetta er bara fyndið.
Þessir sömu gæjar virðast hafa gert ýmislegt annað þar með talið gefið út sektir til fólks sem þeim finnst vera “wankers”. Ég vildi að ég gæti gefið út svona sektir – svona númeraplötur fara stundum í taugarnar á mér líka nema ef þær eru fyndnar/sniðugar eins og t.d. “Nei hæ” eða 333. Chasers war on everything – Wanker numberplates.
Hér er annað: Chasers war on everything – Evangelicals.







