Svín og rúm
Rúmið kom í hús í dag – það voru tveir ungir en sveittir strákar sem burðuðust með þetta allt saman upp alla stigana. Þeir settu meira að segja allt rúmið saman og settu svo í samband því rúmið er electricaaal. Nú þarf ég ekki einu sinni að nota magavöðvana við að koma mér fram úr rúminu ég ýti bara á nokkra takka og ég er orðin hálf standandi í rúminu.. eða svona næstum því. Allavega mig hlakkar mikið til að sofa í rúminu í nótt.
Ég er annars búin að vera að skoða uppskriftir fyrir jóladagsboðið og var mikið búin að vera að hugsa um hvað í ósköpunum ég ætti að hafa með pörusteikinni sem ég ætla að reyna að elda. Það var mikið búið að humma og hugsa þegar mér datt það snilldarráð í hug að skoða eitthvað af þessum 20 uppskriftabókum sem ég á – það er aldrei að vita nema það leynist 1-2 meðlætisuppskriftir einhvers staðar á öftustu blaðsíðunum (snark). Finn ég þá ekki eina uppskriftabók í bunkanum sem heitir “Meðlæti” sem mín var náttúrulega búin að steingleyma að hún ætti. Þetta reyndist vera hin fínasta uppskriftabók. Ég er amk búin að finna það sem ég ætla að búa til; Hrísgrjónasalat með steiktri panchettu, grænmeti og kryddjurtum, Rósakál með birkifræjum og rifnum sítrónuberki, Sætar kartöflur með trönuberjum og svo er ég með eitt aspas meðlæti á listanum en ég held að ég sleppi því – þetta ætti að vera nóg.
Shop ’til you drop
Það gerðist ýmislegt í dag – ég fór að skoða rúm, keypti mér snyrtiborð, ætlaði að skoða fleiri rúm í IKEA og endaði á að kaupa hálfa búðina (en auðvitað ekkert rúm) fór svo í Saltfélagið og ætlaði að kaupa klukkuna mína, sem ég er búin að vera að stara á og langa í í marga, marga mánuði. EN hún var ekki til. Þau voru nýbúin að selja síðasta eintakið þannig að ég fór bara eitthvað að slæpast um búðina og ætlaði svo að panta eitt eintak af klukkunni góðu á leiðinni út. En þá gerðist sá merkilegi hlutur að ég sá alveg jafn flotta (en allt öðruvísi) klukku sem var meira að segja til á lager og helmingi ódýrari en hin klukkan. Ég er ekkert smá fegin að þær báðar voru ekki til því ef ég hefði þurft að ákveða á milli þeirra tveggja þá hefði nú litla heilabúið fyrst farið að sjóða yfir. Þannig að á 5 mín. þá ákvað ég bara “out with the old and in with the new” og bara keypti hina klukkuna. Hún var nú svo sem ekkert ódýr en þar sem hún var helmingi ódýrari heldur en hin klukkan (sem ég var búin að sætta mig við að ég þyrfti að borga morðfjár fyrir) þá finnst mér eins og ég hafi sparað hellings pening
En svona virkar heilabúið hjá hennar hátign – það tekur hana tæplega 2 ár að sætta sig við og ákveða að kaupa EINA klukku og svo er öllu sópað til hliðar og önnur klukka (sem hún hefur aldrei séð áður) keypt á innan við 5 mín. Svo skilja sumir ekki af hverju það eru engar myndir á veggjunum hjá mér.
Eyrnalokkar og parket
Jói ofursmiður er búinn að setja parketið á herbergin mín. Ég get sko sagt ykkur það að þetta er allt annað líf!!!
Þrátt fyrir að hafa farið með mjög nákvæm mál upp í Harðviðarval og verið “látin” kaupa einhverja fermetra af parketi yfir málin (man ekki alveg hversu mikið) þá rétt passaði parketið á herbergin tvö. Það er svona hálf spýta eftir ef ekki minna en það. Mín skoðun er sú að mína mælingar voru AUÐVITAÐ ekki rangar… tölvurnar í Harðviðarval kunna bara ekki að reikna. Goes without saying..
En er það ekki soldið spúkí þegar maður finnur eyrnalokka, sem maður hefur aldrei séð áður, undir rúminu sínu???? Þegar ég var að færa rúmið mitt til og frá til að geta ryksugað gólfið almennilega undir því þá fann ég eyrnalokka.. fyrir göt. Þar sem ég hef ekki verið með göt í eyrunum í mörg ár og ég hef aldrei séð þessa eyrnalokka áður…. well… mér finnst þetta frekar fyndið og mjög skrítið.. lol. Spurning um að hringja í Mulder og Scully.
Jólafílíngur
Aðventulag Baggalúts er komið út.
Sungið við lagið “You’ve got that loving feeling” (Er það ekki “Top Gun” lagið þ.e. það sem Krúsarinn söng á barnum fyrir dömuna??? )
Allavega… smá brot úr textanum:
ÉG KEMST Í JÓLAFÍLING
Jafnan í desember þegar jól gera við sig vart
þá er alvanalegt að tína fram dáldið jólaskart.
Og alltaf finnst mér jafn gaman gæskur
er getum við hengt það upp saman.
Ég kemst í jólafíling, algeran jólafíling.
Ég kemst í jólafílinginn með þér. …
Sjá restina af textanum hér.







